Um fyrirtækið
Fyrirtækið Rafstjórn ehf. var stofnað í janúar 1986 af Erling Guðmundssyni. Aðalstarfssemi fyrirtækisins er uppsetning og viðhald loftræstikerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir. Meðal verkefna sem Rafstjórn hefur annast, má nefna tölvustýrð loftræstikerfi í Ráðhúsi Reykjavíkur og Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkurflugvallar, en á báðum þessum stöðum fékk Rafstjórn viðurkenningu Lagnafélags Íslands fyrir lofsvert lagnaverk.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 12 starfsmenn, með áratuga reynslu í uppsetningu og viðhaldi loftræstikerfa
 |
Rafstjórn selur loftræstikerfi, kælitæki, rakatæki, rekstrarvörur, vatnshreinsibúnað og stjórnbúnað fyrir loftræstikerfin. Fyrirtækið hefur um árabil flutt inn og selt hágæða kæliskápa fyrir stærri tölvurými frá Stulz í Þýskalandi.
Á árinu 2000 hóf fyrirtækið innflutning á kælitækjum fyrir minni tölvurými og sérstaklega hljóðlát tæki fyrir skrifstofur og fundarsali. Kælitækin geta á stundum komið í stað loftræstikerfis og eru mun ódýrari lausn og virka oft enn betur. |
Rafstjórn hefur einnig annast viðhald loftræstikerfa hjá Kb-Banka, íþróttamið Garðabæjar, Embætti Forseta Íslands, Listasafni Kópavogs, Stofnun Árna Magnússonar, á Kjarvalsstöðum auka fjölda annarra verkefna. Rafstjórn hefur einnig selt stjórnbúnað í mörg stórhýsi sem byggð hafa verið undanfarin ár. Má þar nefna hús Orkuveitu

Reykjavíkur, prentsmiðju Morgunblaðsins, Smáralind, Vöruhótel Eimskipafélagsins, Vöruhótel Samskipa, flugskýli á Keflavíkurflugvelli og á fleiri stöðum.
Rafstjórn og Almenna Verkfræðistofan stofnuðu fyrirtækið
Innivist ehf. árið 1996, sem hefur það hlutverk að gera úttekt á vistfræðilegu ástandi í byggingum og veita ráðgjöf sem leiðir til betri innivistar, mælingar byggjast á staðlaðri mælitækni og eru gerðar með háþróuðum mælitækjum.